Vefkökur

Þessi vefsíða notar vefkökur til þess að bæta upplifun notenda.

Nánar um vefkökur

Vinnslusamningur

Notkunarskilmálar / Persónuverndarstefna / Vefkökur / Vinnslusamningur

Vinnslusamningur Tilkynna

Þessi vinnslusamningur setur fram skilmála og skilyrði varðandi vinnslu persónuupplýsinga af Tilkynna og / eða undirvinnsluaðila Tilkynna. Tilkynna er heimilt að vinna með persónuupplýsingar um lögaðila, í tengslum við þjónustu við lögaðila samkvæmt samningnum er, og getur því talist vinnsluaðili í skilningi reglugerðar Evrópuþingsins og Evrópuráðs frá 27. apríl 2016, um vernd einstaklinga með tilliti til vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsan flutning slíkra gagna.

Lögaðili, með staðfestu á Íslandi, hér eftir nefndur „ábyrgðaraðili“ sem hefur sótt um þjónustu Tilkynna í gegnum vefsíðu Tilkynna.is

OG

Slidesome ehf, með staðfestu á Íslandi, hér eftir nefndur „vinnsluaðili“,

gera með sér svofelldan vinnslusamning, í samræmi við 28. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016:

I. Tilgangur samnings

Tilgangur þessara samningsákvæða er að tilgreina þær skyldur sem vinnsluaðili sinnir f.h. ábyrgðaraðila, í tengslum við þá vinnslustarfsemi sem samningurinn tekur til, sjá nánar í kafla 4 um Skyldur vinnsluaðila gagnvart ábyrgðaraðila.

Samningsaðilar skulu bundnir af öllum viðeigandi lagaákvæðum sem varða vinnslu persónuupplýsinga hjá þeim og þá sérstaklega reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679, frá 27. apríl 2016, um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almennu persónuverndarreglugerðinni) sem kemur/kom til framkvæmda 25. maí 2018.

II. Lýsing á þeirri vinnslu sem samið er um að vinnsluaðili sinni

Vinnsluaðila er heimilt að vinna, f.h. ábyrgðaraðila, þær persónuupplýsingar sem eru honum nauðsynlegar til að veita eftirfarandi þjónustu

Eðli þeirrar vinnslustarfsemi sem hér um ræðir er að taka á móti tilkynningum og miðla þeim til lögaðila.

Vinnsluaðila er heimilt að vinna með eftirfarandi tegundir persónuupplýsinga sem ábyrgðaraðili veitir:

  • Tengiliðaupplýsingar eins og nafn, kennitala, heimilisfang og netfang ábyrgðaaðila
  • Tilkynningasvæði sem eru frátekin fyrir ábyrgðaraðila
  • Áskriftarleið sem ábyrgðaraðili hefur valið

Vinnsluaðila er heimilt að vinna með eftirfarandi tegundir persónuupplýsinga fyrir hönd ábyrgðaraðila:

  • Nafn, kennitala, símanúmer og/eða netfang tilkynnenda og/eða aðrar upplýsingar sem ábyrgðaraðili óskar eftir á tilkynningasvæðum.

Vinnsluaðila er heimilt að vinna með eftirfarandi flokka af skráðum einstaklingum:

  • Ábyrgðaraðili
  • Starfsmenn og aðrir notendur ábyrgðaraðila
  • Viðskiptavinir ábyrgðaraðila ef við á
  • Notendur sem eru boðnir inn á tilkynningu fyrir hönd ábyrgðaraðila

Til að vinnsluaðili geti veitt umbeðna þjónustu, skal ábyrgðaraðili veita vinnsluaðila eftirfarandi upplýsingar

  • Nafn, kennitala, heimilisfang og netfang ábyrgðaaðila
  • Tilkynningasvæði sem ábyrgðaraðili notar
  • Áskriftarleið sem ábyrgðaraðili hefur valið

III. Gildistími samnings

Samningur þessi tekur gildi þegar ábyrgðaraðili samþykkir skilmála Tilkynna við nýskráningu að þjónustunni og gildir á meðan ábyrgðaraðili nýtir sér þjónustu Tilkynna með einhverjum hætti.

IV. Skyldur vinnsluaðila gagnvart ábyrgðaraðila

Vinnsluaðili skal:

  1. eingöngu vinna persónuupplýsingar í samræmi við tilgang vinnslunnar, skv. samningi þessum

  2. eingöngu vinna persónuupplýsingar samkvæmt skriflegum fyrirmælum ábyrgðaraðila, sem fylgja samningi þessum. Í þeim tilvikum þegar vinnsluaðili telur að fyrirmæli ábyrgðaraðila samrýmist ekki almennu persónuverndarreglugerðinni eða öðrum viðeigandi lagaákvæðum sem varða vinnslu persónuupplýsinga ber honum að tilkynna ábyrgðaraðilanum slíkt án tafar. Þá skal vinnsluaðili gera ábyrgðaraðila viðvart ef vinnsluaðila er skylt samkvæmt lögum að flytja persónuupplýsingar til þriðju landa eða alþjóðastofnana, nema lög banni að upplýst sé um slíkt.

  3. tryggja trúnað um vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem þessi samningur tekur til, og

  4. tryggja að þeir starfsmenn sem hafi aðgang að persónuupplýsingum í tengslum við framkvæmd samningsins hafi undirritað trúnaðaryfirlýsingu eða séu bundnir þagnarskyldu samkvæmt lögum og að þeir fái viðeigandi þjálfun í vernd persónuupplýsinga.

  5. gæta þess að tæki og tól, vörur, forrit og þjónusta séu hönnuð með innbyggða og sjálfgefna persónuvernd að leiðarljósi.

  6. Notkun á undirvinnsluaðila:

    • Vinnsluaðila er heimilt að semja við annan aðila („undirvinnsluaðila“) um að framkvæma tilteknar vinnsluaðgerðir. Áður en ætlaðar breytingar taka gildi, bæði þegar bætt er við undirvinnsluaðila og þegar gerðar eru breytingar á þeim undirvinnsluaðilum sem þegar eru notaðir, eða þegar um að ræða viðbætur eða breytingu á gildandi fyrirkomulagi vinnsluaðgerða, skal vinnsluaðili upplýsa ábyrgðaraðila skriflega um breytingarnar. Þar skal sérstaklega taka fram hvaða vinnsluaðgerðir undirvinnsluaðilinn hyggst taka að sér, nafn og samskiptaupplýsingar undirvinnsluaðilans ásamt dagsetningu samnings. Ábyrgðaraðili hefur 30 daga frá þeim degi sem hann móttekur upplýsingar um breytingu á notkun á undirvinnsluaðila til að andmæla því. Notkun á undirvinnsluaðila er eingöngu heimil þegar ábyrgðaraðili hefur ekki andmælt því innan tímamarkanna.
  7. Réttur hinna skráðu til upplýsinga.

    • Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á því að veita hinum skráðu upplýsingar (fræðslu) um vinnslustarfsemina fyrir eða um leið og vinnsla hefst, í samræmi við ákvæði almennu persónuverndarreglugerðarinnar um upplýsingar sem ber að veita hinum skráða, sbr. m.a. 13. og 14. gr. hennar.
  8. Veiting réttinda til handa hinum skráðu

    Að því marki sem hægt er ber vinnsluaðila að aðstoða ábyrgðaraðila við að sinna þeirri skyldu sinni að bregðast við erindum skráðra einstaklinga vegna réttinda þeirra, svo sem vegna aðgangsréttar, réttar til leiðréttingar og eyðingar upplýsinga og til að andmæla vinnslu eða takmarka hana, flutningsréttar og réttar til að þurfa ekki að sæta sjálfvirkri ákvarðanatöku, þ.m.t. notkun persónusniða. Þegar hinn skráði leggur fram beiðni um að neyta réttinda sinna hjá vinnsluaðila skal vinnsluaðilinn áframsenda slíka beiðni án tafar til ábyrgðaraðila.

  9. Tilkynning vegna öryggisbrots

    Vinnsluaðili skal tilkynna ábyrgðaraðila með símtali, tölvupósti eða öðrum leiðum um hvers konar öryggisbrot eigi síðar en 24 klukkustundum eftir að hann verður var við brotið. Með tilkynningunni skulu fylgja hver þau skjöl eða gögn sem nauðsynleg eru til þess að ábyrgðaraðili geti tilkynnt um brotið til viðeigandi eftirlitsstofnunar (Persónuverndar).

    Upplýsingar sem sendar eru hinum skráðu skulu vera á skýru og einföldu máli og lýsa í það minnsta:

    • eðli öryggisbrotsins, þ.m.t., þegar það á við, flokkum og gróflega áætluðum fjölda þeirra einstaklinga sem verða fyrir áhrifum af brotinu og flokkum og magni þeirra gagna (e. records) sem um ræðir, nafni og samskiptaupplýsingum persónuverndarfulltrúa eða annars tengiliðar þar sem hægt er að nálgast frekari upplýsingar,
    • hverjar séu líklegar afleiðingar öryggisbrotsins,
    • til hvaða aðgerða hafi verið gripið eða lagt til að gripið verði til til að bregðast við brotinu, þ.m.t., þar sem það á við, aðgerða til að draga úr áhrifum brotsins á einstaklinga,
    • til hvaða aðgerða einstaklingarnir geti gripið til að lágmarka tjón sitt, t.a.m. að skipta um lykilorð.
  10. Aðstoð gagnvart ábyrgðaraðila við að uppfylla skilyrði almennu persónuverndarreglugerðarinnar

    Vinnsluaðili skal:

    • aðstoða ábyrgðaraðila við að framkvæma mat á áhrifum á persónuvernd.
    • aðstoða ábyrgðaraðila við að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar um fyrirframsamráð við eftirlitsyfirvaldið (Persónuvernd
  11. Öryggi persónuupplýsinga

  • Vinnsluaðili skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þeirra sem hann vinnur með fyrir hönd ábyrgðaraðila. Ráðstafanirnar skulu taka mið af nýjustu tækni, kostnað við innleiðingu, umfangi, samhengi og tilgangi vinnslu og áhættu.

  • Vinnsluaðili skal innleiða eftirfarandi öryggisráðstafanir:

    • nota gerviauðkenni og dulkóðun upplýsinga
    • geta tryggt viðvarandi trúnað, samfellu, tiltækileika og álagsþol vinnslukerfa- og þjónustu
    • geta endurheimt tímanlega tiltækileika og aðgang að persónuupplýsingum ef til efnislegs eða tæknilegs atviks kemur
    • taka upp ferli til að prófa og meta reglulega skilvirkni tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að tryggja öryggi vinnslunnar.
    • koma í veg fyrir að persónuupplýsingar eyðileggist, glatist eða skemmist fyrir slysni, eða með ólögmætum hætti
    • vinna eftir og viðhalda ISO 27001 vottun á hýsingarumhverfi hugbúnaðarkerfisins, þ.m.t. viðhalda skjalfestri öryggisstefnu, uppfæra áhættumat reglulega og gera viðeigandi öryggisráðstafanir
    • stýringu aðgengis starfsmanna og annarra að kerfum sem hafa að geyma persónu­upplýsingar
  • Ákveði ábyrgðaraðili að framkvæma áhættumat í tengslum við tiltekna vinnslu skal vinnsluaðili aðstoða ábyrgðaraðila við slíkt mat í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga.

  • Vinnsluaðili skal ávallt upplýsa ábyrgðaraðila hvar persónuupplýsingarnar eru hýstar. Alfarið er óheimilt að flytja persónuupplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins nema á grundvelli skriflegra fyrirmæla ábyrgðaraðila þar um.

  1. Innra eftirlit
  • Vinnsluaðili skal viðhafa innra eftirlit með vinnslu persónuupplýsinga til að ganga úr skugga um að unnið sé í samræmi við gildandi lög og reglur og þær öryggisráðstafanir sem ákveðnar hafa verið.
  • Innra eftirlit skal viðhaft með reglubundnum hætti. Tíðni eftirlitsins og umfang þess skal ákveðið með hliðsjón af áhættunni sem er samfara vinnslunni, eðli þeirra gagna sem unnið er með, þeirri tækni sem notuð er til að tryggja öryggi upplýsinganna og kostnaði af framkvæmd eftirlitsins. Eftirlitið skal þó ekki fara fram sjaldnar en árlega.
  • Vinnsluaðili skal gera skýrslu um framkvæmd innra eftirlits. Í slíkri skýrslu skal lýsa niðurstöðu hvers þáttar eftirlitsins. Skýrslurnar ber að varðveita tryggilega. Ábyrgðaraðili hefur rétt á að fá afrit af slíkri skýrslu, óski hann þess.
  1. Hvað verður um persónuupplýsingar við lok vinnslu

    Þegar þjónustu lýkur samkvæmt samningi þessum samþykkir vinnsluaðili að skila öllum persónugreinanlegum upplýsingum til ábyrgðaraðila og eyða þeim.

    • eyða öllum persónugreinanlegum upplýsingum, eða
    • skila öllum persónugreinanlegum upplýsingum til ábyrgðaraðila, eða
    • skila öllum persónugreinanlegum upplýsingum til annars vinnsluaðila, tilnefnds af ábyrgðaraðila.

    Þegar upplýsingum er skilað þarf einnig að eyða öllum afritum af persónugreinanlegum upplýsingum sem finna má í kerfum vinnsluaðila. Þegar upplýsingum hefur verið eytt skal vinnsluaðili sýna fram á það skriflega.

  2. Persónuverndarfulltrúi

    Vinnsluaðili skal senda ábyrgðaraðila upplýsingar um nafn og samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa síns, ef hann hefur verið tilnefndur, sbr. 37. gr. reglugerðarinnar.

  3. Skrá yfir vinnslustarfsemi

    Vinnsluaðili skal halda skrá yfir alla vinnslustarfsemi sem fram fer fyrir ábyrgðaraðila. Í henni skal koma fram eftirfarandi:

    • heiti og samskiptaupplýsingar vinnsluaðila, eins eða fleiri, og sérhvers ábyrgðaraðila sem vinnsluaðilinn starfar í umboði fyrir og, eftir atvikum, fulltrúa ábyrgðaraðila eða vinnsluaðila og persónuverndarfulltrúa,
    • flokkar vinnslu sem fram fer fyrir hönd hvers ábyrgðaraðila,
  4. Skjölun vegna sönnunar á reglufylgni

    Vinnsluaðili skal útvega ábyrgðaraðila öll nauðsynleg skjöl til að hann geti sýnt fram á reglufylgni og til að ábyrgðaraðili eða úttektaraðili geti framkvæmt úttektir, þ.m.t. skoðanir, og veita aðstoð við slíkar úttektir.

V. Skyldur ábyrgðaraðila gagnvart vinnsluaðila

Ábyrgðaraðili skal:

  • afhenda vinnsluaðila þau gögn sem nefnd eru í kafla II.
  • skrá skriflega öll fyrirmæli varðandi vinnsluna sem beint er að vinnsluaðila.
  • tryggja, fyrir og á meðan á vinnslu stendur, að hann starfi í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til hans samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni, og
  • hafa yfirumsjón með vinnslunni, þ.m.t. með því að framkvæma úttektir og skoðanir hjá vinnsluaðilanum.

Viðauki 1 - undirvinnsluaðilar

Tilkynna notar Amazon Web Services (AWS) hjá Írlandi, Burlington Rd, Dublin 4, til að hýsa þjónustur og gögn.

Notkun Tilkynna á þjónustu AWS hófst þann 1. janúar 2021.

Hægt er að hafa samband við AWS hér: https://aws.amazon.com/contact-us/

Hægt er að nálgast vinnslusamning AWS hér: Vinnslusamningur AWS