
Öruggt tilkynningakerfi fyrir vinnustaði
Tilkynna styður við uppljóstrun, EKKO-mál og aðrar viðkvæmar tilkynningar á vinnustöðum. Kerfið var þróað á Íslandi með öryggi, trúnað og vandaða meðferð mála að leiðarljósi. Tilkynna er í eigu Slidesome ehf.
Stofnendur Tilkynna

Helga Kristín Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri
Helga Kristín er annar stofnenda Slidesome ehf. Áður starfaði hún hjá CCP, fyrst sem producer í leikjaþróun og síðar sem sr. producer og sr. development manager í vefteymi fyrirtækisins. Helga Kristín var trúnaðarmaður hjá CCP frá 2013 til 2018. Hún lauk námi í stjórnendamarkþjálfun frá Opna háskólanum í HR árið 2015.

Jón Trausti Arason
Tækni- og öryggisstjóri
Jón Trausti er annar stofnenda Slidesome ehf. Hann er tölvunarfræðingur að mennt og starfaði áður hjá CCP sem sr. software engineer og technical lead í vefteymi CCP. Jón Trausti býr yfir margra ára reynslu í hugbúnaðarþróun og öruggri meðhöndlun gagna í skýinu.
Hvernig passar Tilkynna við verklag ykkar?
Förum yfir tilkynningaleiðir, aðgangsstýringu og innleiðingu fyrir vinnustaðinn ykkar.
Bóka kynninguStofna aðgang og prófa frítt