
Lausnir fyrir viðkvæm mál á vinnustöðum
Öruggar tilkynningaleiðir fyrir EKKO-mál, uppljóstranir og aðrar ábendingar
Kynnið ykkur lausnir Tilkynna
Kynnið ykkur hvernig Tilkynna getur stutt við ólík viðfangsefni, verklag og þarfir vinnustaðarins.
EKKOEKKO-mál á vinnustað
Gefið starfsfólki skýra leið til að tilkynna einelti, áreitni og ofbeldi.
Skoða lausn
UppljóstrunUppljóstranir og ábendingar um misferli
Komið á skýrri leið fyrir móttöku uppljóstrana og birtið verklagsreglur fyrir starfsfólk.
Skoða lausn
Aðrar tilkynningarAðrar viðkvæmar tilkynningar
Gefið starfsfólki örugga leið til að koma ábendingum um siðferðisbrot, hagsmunaárekstra og öryggismál á framfæri.
Skoða lausnEKKO-mál og viðbrögð vinnustaðarins
Tilkynningasvæði getur orðið hluti af viðbragðsáætlun vinnustaðarins, með leiðbeiningum um hver tekur við málum og hvað gerist næst.
Með Tilkynna geta umsjónaraðilar tekið við lýsingu á atviki, óskað eftir frekari upplýsingum og haldið utan um samskipti, athugasemdir og stöðu málsins á einum stað.
Uppljóstranir og ábendingar um misferli
Tilkynna er uppljóstrunarkerfi sem veitir starfsfólki skýra og örugga leið til að greina frá mögulegum lögbrotum eða annarri ámælisverðri háttsemi. Umsjónaraðilar geta flokkað tilkynningar, úthlutað málum og skráð aðgerðir.
Tilkynna styður við framkvæmd verklagsins en veitir ekki sjálfkrafa lagavernd og tryggir ekki eitt og sér að lagaskyldum vinnustaðarins sé fullnægt.
Aðrar viðkvæmar tilkynningar
Tilkynningar um siðferðisbrot, hagsmunaárekstra og öryggismál þurfa einnig skýran og öruggan farveg. Skilgreinið hvaða mál eiga heima á hverju tilkynningasvæði og hverjir hafa aðgang að þeim.
Nafnlausar tilkynningar og áframhaldandi samskipti
Vinnustaðurinn getur leyft tilkynningar án þess að tilkynnandi gefi upp nafn. Eftir að tilkynning hefur verið send getur tilkynnandi opnað samskiptagáttina með auðkennisnúmeri og lykilorði, lesið svör og bætt við upplýsingum.
Nafnlaus tilkynning er leið til að koma máli á framfæri, ekki sérstakur málaflokkur. Hún getur átt við um EKKO-mál eða uppljóstrun. Lýsing atvika og viðhengi geta þó gefið vísbendingar um hver tilkynnandinn er.
Mismunandi tilkynningasvæði, skýrt verklag
Með aðskildum tilkynningasvæðum má aðlaga leiðbeiningar, spurningar og aðgang umsjónaraðila að hverjum hópi, til dæmis starfsfólki eða verktökum.
Fjöldi tilkynningasvæða og aðgangur að sérsniðnum spurningum fer eftir áskriftarleið. Í kynningu förum við yfir hvaða uppsetning hentar þörfum vinnustaðarins.
Frá móttöku til eftirfylgni
- Birtið skýra tilkynningaleið og leiðbeiningar fyrir starfsfólk.
- Ákveðið hver tekur við málum og hverjir hafa aðgang.
- Flokkið tilkynninguna og óskið eftir frekari upplýsingum þegar þarf.
- Haldið utan um samskipti, athugasemdir og stöðu málsins á einum stað.
- Fylgið málinu eftir og varðveitið eða hreinsið persónuupplýsingar í samræmi við verklag vinnustaðarins.
Vinnustaðurinn ber ábyrgð á mati málsins, viðbrögðum og faglegri meðferð þess.
Hvernig passar Tilkynna við verklag ykkar?
Förum yfir tilkynningaleiðir, aðgangsstýringu og innleiðingu fyrir vinnustaðinn ykkar.
Bóka kynninguStofna aðgang og prófa frítt