
Vernd uppljóstrara
Skýr tilkynningaleið, trúnaður og eftirfylgni. Tilkynna hjálpar vinnustöðum að halda utan um uppljóstranir
Lög um vernd uppljóstrara
Lög nr. 40/2020 fjalla um vernd einstaklinga sem greina í góðri trú frá lögbrotum eða annarri ámælisverðri háttsemi í starfsemi vinnuveitanda. Til að njóta verndar gegn óréttlátri meðferð þurfa þeir að uppfylla skilyrði laganna.
Samkvæmt 5. gr. laganna skulu vinnustaðir með að jafnaði 50 starfsmenn eða fleiri á ársgrundvelli setja skriflegar verklagsreglur í samráði við starfsfólk. Reglurnar skulu fjalla um móttöku, meðhöndlun og afgreiðslu tilkynninga og vera aðgengilegar starfsfólki.
Hvernig auðveldar Tilkynna móttöku og meðferð tilkynninga?
Tilkynna er öruggt uppljóstrunarkerfi sem hjálpar vinnustöðum að taka við tilkynningum, eiga samskipti við tilkynnendur og fylgja málum eftir á einum stað. Tilkynna veitir umsjónaraðilum skýra yfirsýn og auðveldar þeim að afla frekari upplýsinga og fylgjast með framvindu mála.
- Móttaka tilkynninga: Vinnustaðurinn fær eigið tilkynningasvæði með sérstakri vefslóð. Þar er hægt að birta leiðbeiningar og verklagsreglur fyrir starfsfólk.
- Samskipti og viðbótarupplýsingar: Sá sem sendir inn tilkynningu getur skráð sig inn á samskiptagátt með auðkennisnúmeri og lykilorði. Þar getur viðkomandi bætt við upplýsingum, sent gögn og séð stöðu málsins.
- Möguleiki á nafnlausum tilkynningum: Vinnustaðurinn getur boðið starfsfólki að senda inn tilkynningar án þess að gefa upp nafn. Á tilkynningasvæðinu má birta skýrar leiðbeiningar um hvernig það er gert.
- Skipulögð málsmeðferð: Umsjónaraðilar geta flokkað tilkynningar, skráð athugasemdir og uppfært stöðu mála.
- Yfirsýn yfir aðgerðir: Atburðaskrá heldur utan um skráðar aðgerðir í kerfinu og auðveldar umsjónaraðilum að fylgjast með meðferð mála.
Skýrt verklag er lykilatriði
Skilgreina þarf hver tekur við tilkynningum og ber ábyrgð á eftirfylgni, hverjir hafa aðgang að málum og hvernig tilkynnendur fá upplýsingar um framvindu þeirra. Starfsfólk þarf jafnframt að vita hvar það getur sent inn tilkynningu og hvernig það getur átt áframhaldandi samskipti við umsjónaraðila.
Notkun Tilkynna veitir ekki sjálfkrafa lagavernd og tryggir ekki ein og sér að lagaskyldum sé fullnægt. Vinnustaðurinn þarf að tryggja að meðferð tilkynninga og meðhöndlun trúnaðarupplýsinga samræmist lögum og eigin verklagsreglum.
Einfaldari móttaka og eftirfylgni með Tilkynna
Kynnið ykkur hvernig Tilkynna getur hjálpað vinnustaðnum ykkar að taka við tilkynningum, halda utan um samskipti og fylgja málum eftir.