
Öryggi og trúnaður í Tilkynna
Aðgangur, auðkenning og rekjanleiki við meðferð viðkvæmra tilkynninga
Aðgangur að viðkvæmum málum
Tilkynna gerir kleift að bæta umsjónaraðilum við mál og bjóða utanaðkomandi aðilum að veita umsögn með stillanlegum aðgangsréttindum. Vinnustaðurinn þarf að ákveða hverjir þurfa aðgang og endurskoða hann þegar hlutverk breytast.
Auðkenning og innskráning
Notendur umsýslukerfisins nota tveggja þátta auðkenningu við innskráningu. Rafræn skilríki eru einnig í boði á viðeigandi áskriftarleiðum. Stillingar tilkynningasvæðis ráða því hvort tilkynnandi þarf að auðkenna sig eða getur sent inn nafnlaust.
Samskipti innan kerfisins
Samskiptagátt heldur utan um skilaboð og gögn sem tengjast tilkynningu. Tilkynnandi notar auðkennisnúmer og lykilorð til að halda áfram samskiptum. Boðkerfið gerir mögulegt að kalla eftir umsögn ráðgjafa án þess að afrita málsgögn inn í tölvupóst.
Atburðaskrá og eftirfylgni
Skráðar aðgerðir birtast í óbreytanlegri atburðaskrá. Þar má sjá hver framkvæmdi aðgerð og hvenær. Þegar aðgangs að persónuupplýsingum tilkynnanda er óskað þarf að gefa ástæðu sem er skráð.
Meðferð persónuupplýsinga
Kerfið býður upp á hreinsun persónuupplýsinga eftir að máli er lokið. Vinnustaðurinn þarf að ákveða varðveislu og aðgang að gögnum út frá eigin verklagi og þeim kröfum sem eiga við um starfsemina.
Spurningar fyrir innleiðingu
Hafið samband við [email protected] til að fara yfir öryggiskröfur vinnustaðarins og fá upplýsingar um hýsingu, gagnastaðsetningu, afritun og samningsskilmála áður en innleiðing hefst. Saman má fara yfir hvernig kerfið fellur að verklagi ykkar.